Hæbb. Skrifaði upp af öllum blöðunum
á barnum
Enjoy
“Varúð! Barþjónninn bítur!!”
“Er að leita að fallegri konu með áhuga
á skammtímasambandi. Áhugasamir hafi samband við Bláskegg, í
kastala hans.”
“Afsakið en barþjónninn ykkar þjáist af
krónískum húmorskorti. Í stað brandara gefum við ykkur í þetta sinn
gjafabréf uppá 1 rúmmeter af Diet Lofti ásamt sakaruppgjöf á einum
glæp, undir morði.”
“Barþjónninn ykkar er að íhuga djúpa
leyndardóma lífsins. Reynið að hafa ekki hátt.”
“STOP THIS
NONSENSE! - Viltu munngælur? – Já kannski,
nei, já, kannski...? – Ok, Sverrir er til.”
“Það hefur verið vísindalega sannað að
stunda kynmök með a.m.k. tveimur krókódílum á lífsleiðinni dregur
úr hættu á krabbameini.”
“Athugið. Ritvilla var í ofangreindri
frétt. Þar sem stendur Krókódíll á að standa alígeitor. Við
biðjumst afsökunar á þessu.”
“Barþjónninn ykkar lenti í alvarlegum
sálskaða vegna gaggs einhverrar skessu. Ég skil reyndar ekkert í
því sem hún sagði, en það var örugglega ljótt. Ég kem ekki undan
barnum þar til hún biðst afsökunar.”
“Einmana dapur barþjónn er að leita að
heitu sveittu kynlífi. Áhugasamir hafi samband við Barþjón 1 við
barinn.”
“Ímyndaðu þér heim án gólfs. Myndum við
standa á loftinu?”
“Ef tré fellur í skógi og enginn heyrir,
skiptir þá einhverju máli hvort þú ert samkynhneigður?”
“Barþjónninn ykkar getur því miður ekki
farið frá barnum þar sem hann gleymdi sokkabuxunum sínum og myndi
deyja úr skömm ef einhver sæi hann án þeirra.”
“Barþjónninn ykkar hefur ákveðið að fela
sig þar til hann nennir því ekki lengur.”
“Samkvæmt skipun k
jánamálaráðuneytisins, eigið þið öll að taka af ykkur vinstri
sokkinn og semja þriggja atkvæða lofsvísu um hann.”
“Ef þið eruð óviss um hvor sokkurinn
ykkar er vinstri skuluð þið skera af ykkur hægri fótinn. Þá verða
allir sokkar vinstri.”
“NÝTT OG BETRA VATN. Nú með 35% minna
arseniki.”
“Það virðist vera sem barþjónninn hafi
dáið úr leiðindum. Þar til hæfur Vúdú fæst til að kalla sál hans
til baka, neyðist þið til að hella uppá ykkar eigin
drykki.”
“Barþjónninn ykkar er kominn aftur.
Reynið að sleppa því að koma með krossa nálægt honum eða skvetta á
hann heilögu vatni.”
“Ég hélt að gæfan hefði hætt við mig.
Hún gekk mér ætíð hjá og gerði’ ei vart við sig. Vóóó eins og
paradís þar sem að himins opnast hlið.”
“ATH. Þið hvíta fólk! Við munum ekki
lífa alla fordómana ykkar, þannig að þ ið skuluð halda ykkur á
mottunni!”
“Okkur þykir leitt að tilkynna að hætt
hefur verið við flug 23 til Atlantis í dag. Er það vegna dauða
drekans, af völdum Fallegs Prins frá Gúlí-Gúlí-VasVas. Mun farþegum
vera boðin gisting á Hótel Múskat yfir nóttina og verður flogið
klukkan 8 í fyrramálið. Verður flogið með svíni. Flugfélag
Keffalaya.”
“Er mikill vantsskortur í gangi í
Keffalaya sökum harðlífisfaraldar sem gengur um einmitt
núna. Er því mikill Skólp-skortur. Skólp
og Sorpvinnsla Keffalaya.”
“Kæru leikarar. Líkt og
gyðingarnir fóru í gegnum eyðimörkina án vatns og matar í 40
daga, munuð þið þurfa að vera án vatns. Ég bíð Móse, en hann
kemur máske ekki. Er sífelldum þjófnaði á brúsum að kenna
fyrir vatnsskortinum. Ég ráðlegg ykkur að leita að vin ef þið
eruð þyrst.” (Vin er lítið stöðuvatn í
eyðimörk)